eða að þegja að öðrum kosti: Stúlkan mín á Kvennaskólanum trúlofaðist einhverjum Jóni á Prestaskólanum, hefur hann þá líklega drýgt breyzkleikasynd, en ekki ásetnings, því sennilegast er, að hann hafi ekki annað vitað um hagi stúlkunnar en það, að hún sjálf var falleg og móðir hennar í góðum efnum. Ég fékk njósn af þessu á sumardaginn fyrsta, og er það eina sumargjöfin, sem ég hef fengið á ævinni"Úr smásögunni Skókreppa eftir Guðmund Friðjónsson.
Þessi málsgrein ætti vonandi að vekja með frómum lesendum vissu um ömurleika sumargjafa, sem líktog aðrar kaupmannahátíðir, eru ekkert nema vond og krapkennd kennd í brjóstum þeirra sem minna hafa úr að býta.
Gleðilegt sumar, sumarið kemur fyrr á Fenmetrasín! Gleymum börnunum.
Fjáröflunarkvöldverður Örnu gekk vel í gær, falafel steikt af mér og vakti lukku á pappírsdiskum góðra kvenna og drengja.
,>