but there always remains
my obsession.a song for europe
Hei! Allt ykkar sjónarspil, bomsum boms og andtaka hóp-gapandi hátterni, það er orðið að litlum vindlingum og stórum vindlum eða hráblautum pan flautum. Lækkið í fréttunum og álitsgjöfunum: ég reyki þá oní börnin ykkar og blæs – einsog rakari Mídasar – í pípurnar formælingar:
Þið eruð svín. Þið eruð ssssvín. Þið eruð ssssssssvín.
Hlustið á hóstaköst gríslinganna,
umhyggjusama fólk. Þið eruð svín.
>