Hver er að þræða villigötur auðnanna inní tún svefnrofa minna?

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

 

Vísifingur vinstri handar


klemmdist milli natni og skjólborðs í morgun. Bendir ekki til neins nema þess. Batt svoleiðis um hnútana, að hinir komu í staðinn – mikið hlýtur sá einhenti að vita af aðgerðum sínum.

En í gær fékk ég örlitla járnflís í vísifingur hægri handar. Þá vann ég nálina bara öðruvísi frá mér. Það var engin flísatöng, sem fannst (því þær eru), og þrátt fyrir að finna oddinn með tungunni, var vonlaus pælingin með járnbít til þess eins að slæva enn frekar nokkra aðra von um lausn. – Einsog tíkall í sýrópi, sat örin föst. Ég sé hana ekki lengur, gengin út einsog prinsessurnar á leið til hjartans, kannski?

Sársauki er dómgreindarleysi, oft. Í morgun var það klunnaskapur og einhver eðlisfræði sem ollu mínum. Hönskumknúin iðja mín rauk oní svarthol, bitið einhver tonn. Ég var rangeygður af undran. Úr prísundinni, í miðju veðursins, þegar það er ekkert, náði veröldin kyrrstöðu. Annars má vera, að það hafi verið ofsaveður og ískuldi, rosabulluskýbjörg og fell sem þutu um og við himininn, tóku á sig myndir, sendu bunur hingað og þangað um þéttbýlt útsýnið. Það má bara vel vera. En við dropamálaðann vaskinn náði kaldur flaumurinn að vekja mig, staran hvarf og brostin röddin gat æmt smávegis; undan fingrabjörginni kom allt heilt. Fyrst blekkti mig húðangur, en það voru grunnir pollar sem nælonþræðirnir naga uppvið kjúku..

Í straumnum hjaðnaði bólgan, og með nýfundinni vitund fór mig að verkja. Mér var flökurt. Mér var flökurt lengi dags.

Þetta litla púst, skolta bit, finn ennþá fyrir því. Sumir bókstafir eru sársaukafyllri en aðrir. Gæti skrifað allt með bara þeim. Bitið vakti mig, það er margt ljósara yfirlitum í þessum bogadregnu sársaukalínum. Meinhollt. – Púlsinn í verknum er þó að fjara út. Svörin að lægja, bara því það rétt gutlar núna á spurninni sem spratt svo fram. Í fyrsta eða síðasta lið, hvernig svosem litið er á það, logar á týru. Það voru ekki stáltaugar, ég hef þær ekki, það var uppljómun sem lamaði mig.


Veröldin er höggstaður. Um að gera vera viðbúin, vinir.


Ummæli: Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]





<< Heim

Söfn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Gerast áskrifandi að Ummæli [Atom]