Hver er að þræða villigötur auðnanna inní tún svefnrofa minna?

miðvikudagur, maí 23, 2007

 

Baywatch


Í klósettkassanum er flotholt. Það eina sem minnir á hafið og ströndina er gutlið í kassanum. Stundum stend ég þar á nærbuxunum og sé ekki sólina fyrir sjálfum mér og veggjunum.

Gjálfrið færir manni sálarró, hvernig það fjarar út. Í þessari saurvilpuborg, úr þessari saurvilpuborg.


Ummæli: Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]





<< Heim

Söfn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Gerast áskrifandi að Færslur [Atom]