Hver er að þræða villigötur auðnanna inní tún svefnrofa minna?

laugardagur, október 25, 2008

 

Sænska sjónvarpið á Íslandi – september 1965

nr. fjörtíuogfimm

Hér má sjá innviði Austurbæjarbíós og siðspillt ungviði Íslands. Fjórir ungir menn á sviðinu sarga og arga. Upphitunaratriðin er gaman að sjá, ætli þetta sé ekki eina upptakan með þeim báðum? En betra er að sjá krakkana og hvernig löggan lætur, borðaklæddar sætavísur. Ætli þetta sé ekki hámark múgæsingar í seinni tíð.

Dagsetning er á huldu, einhverntíma milli þriðjudagsins 14da og laugardagsins 18da. Samkvæmt mínum heimildum, All Day and All of the Night: 1961-1996, var ávallt leikið kl 7/15, auk seinni tónleika fös/laugardag (eftir níu-sýninguna). Sunnudag og mánudag eru rólegheit, flogið heim á þriðjudag. Miðvikudaginn 29da kemur See My Friends út í ameríku, það hefur mögulega heyrst í Austurbæjarbíói í september 1965, þar sem svo Turtles myndirnar yfirgnæfðu heila hugsun og einhverjir fávitar vilja enn láta rífa kofann fyrir bílastæði andskotans.


Ummæli: Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]





<< Heim

Söfn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Gerast áskrifandi að Ummæli [Atom]